Út er komin bókin Gamanleikir eftir Hróðsvitu frá Gandersheim í þýðingu Þorsteins Vilhjálmssonar, nýdoktors við Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands. Í bókinni eru allir sex gamanleikir Hróðsvitu birtir í fyrsta sinn á íslensku auk formála. Þorsteinn þýddi bókina úr latínu og skrifaði einnig inngang og skýringar. Háskólaútgáfan gefur bókina út.
Gamanleikir Hróðsvitu frá Gandersheim, sem var uppi á 10. öld. e.Kr., eru einstakir í heimsbókmenntunum. Þeir eru bæði fyrstu kristnu leikritin og fyrstu varðveittu leikrit heims sem eru samin af konu. Hróðsvita, sem bjó í og er kennd við klaustrið Gandersheim í Saxlandi, mótaði þar með nýja en skammlífa bókmenntagrein á ármiðöldum. Umfjöllunarefni hennar voru togstreitan milli holds og anda, örvæntingar og fyrirgefningar, ranglætis og réttrar skipanar heimsins. Þá ritaði hún einnig formála að leikritunum þar sem hún setti fram kröftuga málsvörn fyrir ritstörf kvenna.
Þorsteinn Vilhjálmsson stundar einkum rannsóknir innan fornfræða, hinsegin sögu og sögu kynverundar.