Sigurður Gylfi Magnússon

Tilkynnt hefur verið að Sigurður Gylfi Magnússon, prófessor í menningarsögu við Deild heimspeki, sagnfræði og fornleifafræði í Háskóla Íslands, hljóti verðlaun Konunglegu Gústafs Adolfs akademíunnar í sænskri alþýðumenningu. Verðlaunin hlýtur Sigurður Gylfi fyrir rannsóknir sínar og „framúrskarandi framlag hans til þróunar aðferða einsögunnar sem rannsóknarsviðs.“ Sigurður Gylfi tekur við verðlaununum við hátíðlega athöfn í Uppsalahöll í Svíþjóð 6. nóvember næstkomandi.

Rannsóknir Sigurðar Gylfa Magnússonar hafa einkum beinsta að alþýðumenningu, hversdagslífi, sjálfsbókmenntum (e. egodocuments) og sögu tilfinninganna (e. history of emotions), oft með hjálp aðferða einsögunnar (e. microhistory). Áhuga hans á aðferða- og hugmyndafræði sagnfræðinnar má víða greina í verkum Sigurðar Gylfa eins og kemur fram í nýlegum bók hans. Þar má nefna verkið What is Microhistory? Theory and Practice (2013), meðhöfundur István M. Szijártó. Einnig skrifaði hann bókina Minor Knowledge and Microhistory. Manuscript Culture in the Nineteenth Century (2017), meðhöfundur Davíð Ólafsson, og áður bókina Wasteland with Words: A Social History of Iceland (2010). Síðan hafa komið út bækurnar Disabilty Studies Meets Microhistory: The Secret Life of Bíbí in Berlín, meðhöfundar Sólveig Ólafsdóttir og Guðrún Valgerður Stefánsdóttir (2024); Autobiographical Traditions in Egodocuments. Icelandic Literacy Practices (2023); Emotional Experience and Microhistory. A Life Story of a Destitute Pauper Poet in the 19th Century (2020) og Archive, Slow Ideology and Egodocuments as Microhistorical Autobiography: Potential History (2022). Alls hefur Sigurður Gylfi skrifað þrjátíu bækur og ritsýrt rétt um áttatíu sagnfræðiverkum.

Share