Header Paragraph

Varði doktorsritgerð um ráðskonur í sveit

Image
""

Dalrún Kaldakvísl Eygerðardóttir hefur varið doktorsritgerð sína í sagnfræði við Sagnfræði- og heimspekideild Háskóla Íslands. Ritgerðin nefnist „Huldufreyjur. Ráðskonur í sveit á síðari hluta 20. aldar“ og byggist á sögu ráðskvenna  sem störfuðu á íslenskum sveitaheimilum á síðari hluta 20. aldar. Doktorsritgerðin var unnin undir leiðsögn Erlu Huldu Halldórsdóttur, prófessors við Sagnfræði- og heimspekideild en auk hennar voru í doktorsnefnd þau Guðmundur Jónsson, prófessor við Sagnfræði- og heimspekideild, og Unnur Dís Skaptadóttir, prófessor við Félagsvísindasvið Háskóla Íslands.

Andmælendur við vörnina voru Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, prófessor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands, og dr. Vilhelm Vilhelmsson, forstöðumaður Rannsóknaseturs HÍ á Norðurlandi vestra. Steinunn Kristjánsdóttir, forseti Sagnfræði- og heimspekideildar, stjórnaði athöfninni sem fór fram í Hátíðasal í Aðalbyggingu HÍ 27. júní síðastliðinn. (Smellið hér til að skoða myndir frá vörninni).

Um rannsóknina

Doktorsverkefni Dalrúnar,  „Huldufreyjur. Ráðskonur í sveit á síðari hluta 20. aldar“, byggist á sögu ráðskvenna  sem störfuðu á íslenskum sveitaheimilum á síðari hluta 20. aldar. Rannsóknin grundvallast á viðtölum sem tekin voru við fjörutíu og eina fyrrum ráðskonu í sveit; konur sem margar hverjar höfðu starfað sem ráðskonur á tveimur eða fleiri bæjum, alls á 72 sveitabæjum. Viðtölin gera kleift að segja sögu ráðskvenna á grunni sjónarhorns þeirra sjálfra. Í rannsókninni er rakið hvaða störf ráðskonur höfðu með höndum á sveitaheimilum og  viðhorf þeirra til verkskyldna  sinna. Aukinheldur er fjallað um félagslega stöðu ráðskvenna, hvorutveggja með hliðsjón af stöðu þeirra áður en þær hófu störf sem ráðskonur og einnig frá ráðskonutíð þeirra. Í því sambandi er sjónum sérstaklega beint að stöðu einstæðra mæðra, sem voru stærsti einstaki hópur kvenna sem sinnti ráðskonustarfinu. Þar að auki er fjallað um takmörkuð réttindi ráðskvenna í vistinni, á starfsvettvangi þeirra, sveitaheimilinu.

Um doktorinn

Dalrún Kaldakvísl Eygerðardóttir er með BA-gráðu í sagnfræði og BA-gráðu í kvikmyndafræði frá Háskóla Íslands. Hún er einnig með meistaragráðu í sagnfræði frá sama skóla. Dalrún er sjálfstætt starfandi sagnfræðingur, auk þess sem hún vinnur við fiskirannsóknir hjá rannsóknarfyrirtækinu Laxfiskum. Hún hefur gefið út eina fræðibók. 

Image
""

Á myndinni eru Steinunn Kristjánsdóttir, Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, Dalrún Kaldakvísl Eygerðardóttir, Vilhelm Vilhelmsson, Ólöf Garðarsdóttir og Erla Hulda Halldórsdóttir.