Header Paragraph

Fyrirlestraröð: Eru söfn einhvers virði?

Image

Miðstöð einsögurannsókna við Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands, Þjóðminjasafn Íslands og námskeiðið Einkaskjöl: Vitnisburður hina valdlausu? við námsbraut í sagnfræði efna til fyrirlestraraðar haustið 2023 undir yfirskriftinni Eru söfn einhvers virði? Fyrirlestrarnir fara fram í fyrirlestrasal Þjóðminjasafns Íslands á föstudögum kl. 12:00-13:00. 

Fundarstjórar verða þau dr. Anna Heiða Baldursdóttir, dr. Sólveig Ólafsdóttir og Sigurður Gylfi Magnússon, prófessor í menningarsögu.

Dagskrá: 

  • 25. ágúst. Stjórnmál og söfn – Pólitískir gjörningar á undanförnum mánuðumSigurður Gylfi Magnússon, prófessor í menningarsögu við Háskóla Íslands.
  • 1. september. Einkaskjöl og opinber skjöl, skjalasöfn og stjórnskipan. Héraðsskjalasafn Kópavogs í ljósi sögunnar. Hrafn Sveinbjarnarson, sagnfræðingur – forststöðumaður héraðsskjalasafns Kópavogs.
  • 8. septemberDraumur sem brást – hvers vegna á þjóðin ekkert leiklistar- eða tónlistarsögusafn? Dr. Jón Viðar Jónsson listfræðingur.
  • 15. septemberHvar býr þekkingin? Orri Vésteinsson, prófessor í fornleifafræði við Háskóla Íslands.
  • 22. septemberNútíma skjalastjórn og langtímavarsla opinberra skjalaRagna Kemp Haraldsdóttir, lektor í upplýsingafræði við Háskóla Íslands.
  • 29. septemberSöfn og kennsla: ÞurfamannaæfirRagnheiður Kristjánsdóttir, prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands
  • 6. októberMiðlun menningararfs. (Ó)Þarfar rannsóknir á söfnum. Dr. Anna Heiða Baldursdóttir, nýdoktor við Landsbúnaðarsafnið á Hvanneyri.

Hlé í tvær vikur

  • 27. októberÓhjálplega safniðSigurjón Baldur Hafsteinsson, prófessor í safnafræði við Háskóla Íslands
  • 3. nóvemberEinkasafn og einsaga – tengsl safna og vísindaSigurður Gylfi Magnússon, prófessor í menningarsögu við Háskóla Íslands. 
  • 10. nóvemberEr hægt að leggja Þjóðminjasafnið niður? Dr. Kristján Mímisson, sérfræðingur í miðlun menningarsögu á Þjóðminjasafni Íslands.
  • 17. nóvemberEr Hafnafjörður týndur? Gögn gamla HafnafjarðarDr. Sólveig Ólafsdóttir, nýdoktor við Háskóla Íslands
  • 24. nóvemberHvers vegna í ósköpunum ættum við að halda upp á þetta? Bókasafn Íslenska esperantosambandsins og saga alþjóðahyggju á Íslandi. Benedikt Hjartarson, prófessor í almennri bókmenntafræði og menningarfræði við Háskóla Íslands.
  • 1. desember. Samantek og umræða.