Hverjir geta sótt um útgáfustyrk Sagnfræðistofnunar

Allir fastir félagar stofnunarinnar hafa rétt á að sækja um styrk til útgáfu eigin bóka á fagsviði Sagnfræðistofnunar. Með föstum félögum er átt við þá sem hafa atkvæðisrétt á fundum stofnunarinnar samkvæmt reglum. Rannsakendur sem vinna að eigin styrktu verkefni í a.m.k. 50% starfi hafa sama rétt. Ef fastir félagar koma að útgáfu bóka án þess að vera höfundar verður hvert tilvik metið fyrir sig. Að jafnaði er miðað við að styrkir geti ekki verið fleiri en einn á ári. Umsækjandi verður að vera félagi í Sagnfræðistofnun þegar styrkur er greiddur út.

Hvað er styrkt

Styrkir eru veittir til útgáfu bóka á fagsviði stofnunarinnar (þ.e. sagnfræði).

Styrkupphæð

Styrkupphæð er ákveðin hverju sinni en hámarksstyrkhæð er 600.000 fyrir hverja útgefna bók. Heildarupphæð styrkja skal þó aldrei fara yfir 75% af ráðstöfunarfé stofnunarinnar á hverju ári.

Umsóknarfrestur

Hægt er að sækja um hvenær sem er og umsóknir eru teknar til umfjöllunar á næsta fundi stjórnar Sagnfræðistofnunar.

Umsóknarferli

Félagar senda formlega umsókn til stjórnarformanns Sagnfræðistofnunar þar sem kemur fram:

  • Titill bókar, höfundur/ritstjóri, útgáfufyrirtæki, áætluð dagsetning útgáfu
  • Efnisyfirlit bókar/uppkast að handriti
  • Í hvaða verkþátt útgáfunnar á að nýta styrkinnog rök fyrir þörf á styrknum
  • Afrit af samningi við útgáfufyrirtæki til staðfestingar útgáfu ef það liggur fyrir 

Útgáfustyrkur verður greiddur til útgefanda eða höfundar (sem þarf þá að leggja fram staðfestingu á kostnaði) við útgáfu bókar.

Skilyrði fyrir styrkveitingu

Drög að handriti þurfa að liggja fyrir til samþykkis styrkveitingar. Gert er ráð fyrir að styrkt bók komi út fyrir árslok árið eftir að vilyrði fyrir styrk var veitt, ellegar fellur styrkveiting niður. Allar útgáfur sem styrktar eru af hálfu Sagnfræðistofnunar skulu bera merki hennar.

Share