Header Paragraph

Fyrirlestur: Bíbí í Berlín

Image

Sólveig Ólafsdóttir, nýdoktor við Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands, segir frá Bíbí í Berlín. Bíbí hét Bjargey Kristjánsdóttir (1927 – 1999) en hún var kennd við kotbæ foreldra sinna, Berlín. Hún þótti bráðgert barn en veiktist á fyrsta ári og var síðar stimpluð sem „fáviti" af fjölskyldu sinni og sveitungum. Þegar móður Bíbíar féll frá var hún þrítug og var þá flutt á elliheimilið á Blönduósi þar sem hún dvaldi í tæpa tvo áratugi. Um síðir flutti hún í þorpið og lifði þar í skjóli vina. Nýverið kom út í ritröðinni Sýnisbók íslenskrar alþýðumenningar sjálfævisaga Bíbíar, en hún lét eftir sig 120 þúsund orða sjálfsævisöguhandrit sem hún hafði unnið að mestu í einrúmi, hélt leyndu fyrir fjölskyldu sinni og samferðarfólki og fáir vissu um tilvist þess, enda vissu fáir að hún væri læs eða skrifandi.