Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands efnir til málstofu um félags- og hagsögu á haustmisseri 2026. Fyrirlestrarnir verða haldnir í stofu 304 í Árnagarði annan hvorn þriðjudag kl. 16:00-17:00, frá og með 15. september til og með 24. Nóvember.

Málstofa í félags- og hagsögu í Háskóla Íslands er umræðuvettvangur fyrir hvers konar viðfangsefni í félags- og hagsögu á hvaða tímabili sem er. Málstofan er með óformlegu sniði þar sem fólki gefst tækifæri til að kynna rannsóknir sínar, verk í vinnslu jafnt sem útgefin verk, prófa nýjar hugmyndir og kenningar eða taka fyrri rannsóknir til gagnrýnnar skoðunar. Á eftir framsögum verður gefinn góður tími til fyrirspurna og almennra umræðna. Málstofan er á vegum kennara í sagnfræði og viðskiptafræði í Háskóla Íslands og umsjón nú á vormisseri hafa Rósa Magnúsdóttir, prófessor í sagnfræði (rm@hi.is) og Haukur Ingvarsson, lektor í hagnýtri menningarmiðlun (haukuri@hi.is).

Dagskrá haustmisseris 2026:

  • 15. september. Sergey Radchenko, Rupert Murdoch prófessor við John Hopkins School of Advanced International Studies. Power Play: the Ruthless Rise and Perilous Future of Russia’s Energy Empire 
  • 29. september. Hera Guðmundsdóttir, MA í hagnýtri menningarmiðlun og hönnuður. Geðveik mamma: Sögur úr fortíð og samtíð
  • 13. október. Ragnar Árnason, prófessor emeritus við Háskóla Íslands. Hvað kostaði einokunarverslunin Ísland?
  • 27. október. Agnar Tómas Möller, meistaranemi í sagnfræði við Háskóla Íslands. Lánsfjárleitir og erlent lánsfjármagn á Íslandi á millistríðsárunum. 
  • 10. nóvember. Pontus Järvstad, doktor í sagnfræði frá Háskóla Íslands. Deilur um pólitíska einkennisbúninga á Íslandi á millistríðsárunum: Grástakkar, blámenn og mykjugafflar.
  • 24. nóvember. Guðni Thorlacius Jóhannesson, prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands. Sagan af sögu þorskastríðanna
Share