Út er komin bókin Þurfamenn fá mannréttindi eftir Ragnheiði Kristjánsdóttur, prófessor í sagnfræði við Deild heimspeki, sagnfræði og fornleifafræði við Háskóla Íslands. Bókin fjallar um sögu fátækrahjálpar á Íslandi en í forgrunni eru breyttar hugmyndir um réttindi þeirra sem þurftu að þiggja opinbera aðstoð. Árið 1927 var gerð breyting á íslenskum fátækralögum en fram að því var gert ráð fyrir að þau sem þáðu fátækrastyrk væru svipt ýmsum borgaralegum réttindum, svo sem atvinnufrelsi og kosningarétti. Nú var meirihluti alþingismanna hins vegar orðinn sammála um að þetta væri óréttlátt og þurfamenn skyldu fá mannréttindi – en bara þeir sem taldir voru eiga þau skilið. Lagabreytingin er skoðuð með augum Reykvíkinga, bæði þeirra bæjarbúa sem þurftu að þiggja hjálp og þeirra stjórnmála- og embættismanna sem sáu um að framfylgja nýju lögunum.
Kristín Svava Tómasdóttir ritstýrir bókinni, myndritstjóri er Inga Lára Baldvinsdóttir og útgefandi er Sögufélagið en Þurfamenn fá mannréttindi er önnur af fyrstu bókunum í nýrri ritröð félagsins sem nefnist Sería Sögufélags. Bækurnar í Seríunni eru ætlaðar öllu áhugafólki um sögu, jafnt fróðleiksfúsum almenningi sem fræðafólki. Þar eru vandaðar rannsóknir settar fram á aðgengilegan hátt í lifandi frásögn. Fyrirmynd Seríunnar er ritröðin 100 danmarkshistorie þar sem útgangspunkturinn í hverri bók er tiltekinn atburður sem síðan er settur í sögulegt samhengi, fjallað um forsendur og afleiðingar og þræðir raktir langt aftur og áfram í tíma en hver bók er nákvæmlega 100 blaðsíður að lengd. Hin bókin í Seríunni er Hringvegurinn eftir Arnþór Gunnarsson.
Ragnheiður hefur í rannsóknum sínum fengist við hugmynda- og stjórnmálasögu nítjándu og tuttugustu aldar, einkum vinstri hreyfinguna, verkalýðssögu og þróun lýðræðis. Hún hefur skrifað fjölda greina og bókakafla sem meðal annars fjalla um þróun forsetaembættisins, þjóðernisstefnu, kommúnisma og fasisma á millistríðsárunum sem og stjórnmálastarf íslenskra kvenna á tuttugustu öld. Ragnheiður er höfundur bókarinnar Nýtt fólk. Þjóðerni og íslensk verkalýðsstjórnmál 1901–1944 og einn höfunda bókanna Konur sem kjósa. Aldarsaga, Þingræði á Íslandi – samtíð og saga og ritstjóri og einn höfundur bókarinnar Suffrage, Capital, and Welfare. Conditional Citizenship in Historical Perspective sem kom út árið 2024 hjá Springer.