Header Paragraph

Varði doktorsritgerð um dánarbúsuppskriftir á 19. öld

Image

Anna Heiða Baldursdóttir hefur varið doktorsritgerð í sagnfræði við Deild heimspeki, sagnfræði og fornleifafræði Háskóla Íslands. Titill ritgerðarinnar er Hlutir úr fortíð: Eigur fólks og safngripir frá 19. öld og hún var unnin undir leiðsögn Sigurðar Gylfa Magnússonar, prófessors við Deild heimspeki, sagnfræði og fornleifafræði. Einnig voru í doktorsnefnd Anna Lísa Rúnarsdóttir, Már Jónsson, prófessor við Deild heimspeki, sagnfræði og fornleifafræði og Sigurjón B. Hafsteinsson, prófessor við Félagsfræði-, mannfræði- og þjóðfræðideild Háskóla Íslands.

Andmælendur við vörnina voru Ágústa Edwald Maxwell, nýdoktor við HÍ og Christina Folke Ax, sérfræðingur við Nationalmuseet í Kaupmannahöfn. Sverrir Jakobsson, forseti Deildar heimspeki, sagnfræði og fornleifafræði, stjórnaði athöfninni sem fór fram í Hátíðasal í Aðalbyggingu Háskóla Íslands 7. febrúar. 

Um rannsóknina

Viðfangsefni doktorsritgerðarinnar er að draga fram heimildasöfn (e. archives) og greina þá efnismenningu (e. material culture) sem þau búa yfir. Markmið rannsóknarinnar er að draga fram hversdagslíf alþýðunnar á 19. öld með rannsókn á efnismenningu dánarbúsuppskrifta sem og safnkosts Þjóðminjasafns Íslands frá sama tíma. Vísindalegt gildi rannsóknarinnar er ekki aðeins fólgið í notkun á nýjum heimildum heldur er aðferðin nýstárleg að því leyti að hún miðar að því að greina hlutina út frá mörgum sjónarhornum. Fram að þessu hefur sagnfræðin nálgast viðfangsefni sitt út frá afstöðu mannanna og lítið skeytt um efnisheiminn sem hefur veigamikil áhrif á daglega framgöngu fólks. Nýlunda verkefnisins er því fólgin í því að efnismenning eða hlutir eru notuð sem mikilvægt greiningartæki á fortíðina.

Um doktorinn

Anna Heiða Baldursdóttir lauk BA-prófi í sagnfræði við Háskóla Íslands og MA í sagnfræði frá sama skóla. Hún starfar nú sem sérfræðingur við Landbúnaðarsafn Íslands. 

Image

Sigurður Gylfi Magnússon, Sverrir Jakobsson, Ágústa Edwald Maxwell, Anna Heiða Baldursdóttir, Christina Folke Ax, Ólöf Garðarsdóttir, Anna Lísa Rúnarsdóttir og Sigurjón B. Hafsteinsson.